• Heill heimur
  • Ráðgjöf - PIT meðferð
  • Um mig
  • Námskeið
  • Á döfinni
  • Fyrirlestrar
  • Greinar
  • Hafa samband
  Heill heimur

Seigla, streita, meðvirkni og samskipti!
​ 25. -28.  apríl 2023
Hvenær: 25. - 28. apríl 2023
Námskeiðið hefst á þriðjud. kl. 10.00 og lýkur kl. 14.00 á föstudegi.
Hvar: Hótel Grímsborgir (5* hótel)
Verð: 198. 000 kr.
Staðfestingargjald er kr. 40.000  (óendurkræft )

Innifalið: Gisting í 3 nætur í einbýli, matur og öll dagskrá.
Fjöldi þátttakenda: Hámark 20

Nánari upplýsingar og skráning: heillheimur@heillheimur.is 
Sími: 697 4545

Námskeiðið er styrkt  af flestum starfsmenntunarsjóðum stéttarfélaga

Skráðu þig hér
Áhrifaríkt og valdeflandi námskeið sem færir þekkingu sem sem miðar að því að efla seiglu, bæta samskipti og auka þannig færni í lífi og starfi. 
Athyglinni er beint að nýrri þekkingu og úrræðum, áhrifum og afleiðingum streitu og meðvirkni á samskipti í lífi og starfi.

Námskeið sem gefur verkfæri sem nýtast vel í starfi. Ein grunnforsenda þess að vaxa í starfi eru heilbrigð streita og samskipti. Þau hafa m.a. áhrif á starfsánægju, menningu og starfsanda. Að bera kennsl á þætti í vinnuumhverfi sem valda neikvæðri streitu, óheilbrigðum samskiptum og samskiptaleiðum (okkar eigin og annarra) er einkar mikilvægt þegar að því kemur að skapa gott starfsumhverfi með möguleikum á að auka færni og þróast í starfi.

Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, hvíldar og viðveru í náttúrunni.
​

Viltu :
- þekkja og skilja jákvæð og neikvæð áhrif streitu
- efla seiglu til að takast á við breytingar og áskoranir
- auka færni samskipta í lífi og starfi
- læra að setja heilbrigð mörk
- auka streituþol og nýta streituna til góðs
- minnka líkur á kulnun í starfi
- vera í góðum tengslum við eigið innsæi
- vera betur til staðar hverju andartaki 
- lifa og leiða með hug og hjarta


Hlúð er vel að þátttakendum á dásamlegum stað í fallegri náttúru. Heilnæmur matur og gisting á lúxusstaðnum Hótel Grímsborgum, sem er einstaklega friðsæll staður með fallega fjallasýn.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy)sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Gyða Dröfn er lýðheilsufræðingur EMPH og sérfræðingur í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Hún hefur iðkað Zen hugleiðslu í 20 ár undir handleiðslu Zen meistarans Kwong Roshi.

Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún hefur megnið af sinni starfsævi verið að sinna þeim sem veikst hafa eða slasast en í auknum mæli beint kröftum sínum að heilsueflingu og streituforvörnum. Hún hefur ráðlagt fólki hvernig auka megi seiglu og takast á við álag, en einnig hvernig hægt sé að nýta streituna sem afl til að takast á við áskoranir og breytingar. Hún kennir við læknadeild Háskóla Íslands og er formaður Fræðslustofnunar Læknafélags Íslands.


Picture
Heill heimur  
heillheimur@heillheimur.is
Vallakór 4, 201 Kópavogur
​​​Sími 697 4545

  • Heill heimur
  • Ráðgjöf - PIT meðferð
  • Um mig
  • Námskeið
  • Á döfinni
  • Fyrirlestrar
  • Greinar
  • Hafa samband