Meðvirkni - áhrif á líf, líðan, samskipti og sambönd - 22. janúar 2025
Heill heimur býður upp á námskeið um meðvirkni - hvernig hún þróast, hindrar okkur í persónulegu lífi okkar og kemur í veg fyrir að við getum átt heilbrigð samskipti og náið samband við okkur sjálf og aðra (intimacy = INTO ME YOU SEE)
Viltu :
- auka sjálfsvirðið
- læra að setja heilbrigð mörk?
- minnka spennu í samskiptum
- byggja upp heilbrigðari sambönd
Hugtakið meðvirkni er að sumra mati ofnotað. Ég hef hins vegar komist að því í vinnu minni síðustu árin inn að það er heilmikl vinna fyrir höndum að fræða og auka skilng á því hversu víðfemt hugtakið er og hversu djúpt ræturnar liggja.
Ég tel það mjög mikilvægt því við erum að tala um þetta dýrmæta líf sem okkur er gefið og hvernig við lifum því. Meðvirkni hefur áhrif á hvernig við skynjum og upplifum okkur sjálf og aðra og litar því öll okkar sambönd og samskipti á öllum sviðum lífs okkar.
Með auknum skilningi og vinnu er hins vegar hægt að breyta og það hefur reynslan líka sýnt mér - sem er innblástur í að halda áfram. Hver manneskja sem skilur betur og breytir sínu mynstri hefur nefnilega áhrif á aðra í kringum sig og getur þannig verið afl mikilla breytinga.
Hvenær: janúar 2025
Hvar: Vallakór 4, Kópavogi
Verð: 22.000 kr.
Tími: 16-19
Þátttakendur eru hvattir til að kanna með styrk úr sínum starfsmenntasjóð.
SKRÁNING
Kennari er Gyða Dröfn Tryggvadóttir
Gyða Dröfn starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy)sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Gyða Dröfn er lýðheilsufræðingur EMPH og lauk námi í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Hún hefur iðkað Zen hugleiðslu í 20 ár undir handleiðslu Zen meistarans Kwong Roshi.