Ástvaldur Zenki hefur lokið námi í Compassionate Inquiery (Samkenndarnálgun) sem er sýkóþerapísk leið sem hjálpar okkur að afhjúpa þá ómeðvituðu þætti sem stjórna hegðun okkar í daglegu lífi.
Ástvaldur Zenki hefur lokið diplóma námi í Counselling Skills hjá Chris John, MSc, sálmeðferðarfræðingi. Ástvaldur Zenki hefur iðkað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandaríska Zen-meistarans Jakusho Kwong Roshi síðan 1998. Árið 2018 hlaut Zenki dharma transmission frá Kwong Roshi. Í slíkri athöfn afhendir kennari kennsluna til nemanda síns eins og það hefur verið gert í meira en 2500 ár. Í kjölfarið tók Zenki við sem kennari Zen á Íslandi - Nátthaga. Ástvaldur Zenki fékk þjálfun í Japan og hlaut þá m.a. vígslu í tveimur höfuðklaustrum Sótó Zen búddismans í Japan: Sojiji og Eiheiji. Zenki er skráður og löggiltur prestur og kennari í hinni japönsku Sótó Zen hefð. Ástvaldur Zenki hefur starfað sem prestur og kennari Zen á Íslandi síðan 2011. Ástvaldur lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH árið 1988 og BM prófi frá Berklee Collage of Music árið 1992. Ástvaldur stofnaði og rak tónlistarskólann Tónheima um árabil. Auk þess skrifaði hann kennslubækurnar Hljómar í bókstaflegum skilningi 1 & 2 sem kenndar eru í tónlistarskólum víða um land. Ástvaldur hefur gefið út 2 sólóplötur og var tilnefndur til Íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir besta tónverkið á svið djasstónlistar. Ástvaldur starfar einnig sem organisti og kórstjóri í Bessastaðakirkju. |