Seigla, streita, meðvirkni og samskipti: Vor 2025
Áhrifaríkt og valdeflandi námskeið sem færir þekkingu sem sem miðar að því að efla seiglu, bæta samskipti og auka þannig færni í lífi og starfi.
Athyglinni er beint að nýrri þekkingu og úrræðum, áhrifum og afleiðingum streitu og meðvirkni á samskipti og sambönd í lífi og starfi. Námskeið sem gefur verkfæri sem nýtast vel í starfi. Ein grunnforsenda þess að vaxa í starfi eru heilbrigð streita og samskipti. Þau hafa m.a. áhrif á starfsánægju, vinnustaðamenningu og starfsanda. Að bera kennsl á þætti í vinnuumhverfi sem valda neikvæðri streitu, óheilbrigðum samskiptum og samskiptaleiðum (okkar eigin og annarra) er einkar mikilvægt þegar að því kemur að skapa gott starfsumhverfi með möguleikum á að auka færni og þróast í starfi. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, hvíldar og viðveru í náttúrunni. Viltu : - þekkja og skilja jákvæð og neikvæð áhrif streitu - efla seiglu til að takast á við breytingar og áskoranir - auka færni samskipta - læra að setja heilbrigð mörk - auka streituþol og nýta streituna til góðs - minnka líkur á kulnun í starfi - vera betur til staðar hverju andartaki - lifa og leiða með hug og hjarta Námskeiðið styður við aðgerðavakningu Tökum höndum saman sem Vinnueftirlitið stendur að til að efla heilbrigða vinnustaðamenningu og stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks. Það er ein áhrifaríkasta forvörnin gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað. Heilbrigð vinnustaðamenning hefur auk þess jákvæð áhrif á árangur og orðspor vinnustaða segir á vef Vinnueftirlitsins. |
Hvenær:Vor 2025
Námskeiðið hefst á þriðjud. kl. 11.00 og lýkur kl. 14.00 á föstudegi. Hvar: Hótel Grímsborgir Verð: 240.000 (m/fyrirvara) Staðfestingargjald er kr. 50.000 (óendurkræft ) Innifalið: Gisting í 3 nætur í 2ja manna herbergi, matur og öll dagskrá. Möguleiki á einstaklingsherbergi Fjöldi þátttakenda: Hámark 20 Nánari upplýsingar og skráning: [email protected] Sími: 697 4545 Námskeiðið er styrkt af flestum starfsmenntunarsjóðum stéttarfélaga SKRÁÐU ÞIG HÉR! Kennarar: Gyða Dröfn Tryggvadóttir starfar sem meðferðararaðili í áfalla-og uppeldisfræðum (PIT Therapy)sem daglega er kallað meðvirkni, kennari og fyrirlesari á sviði meðvirkni og núvitundar. Gyða Dröfn er lýðheilsufræðingur EMPH og lauk námi í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Hún hefur iðkað Zen hugleiðslu í 23 ár undir handleiðslu Zen meistarans Kwong Roshi. Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún hefur megnið af sinni starfsævi verið að sinna þeim sem veikst hafa eða slasast en í auknum mæli beint kröftum sínum að heilsueflingu og streituforvörnum. Hún hefur ráðlagt fólki hvernig auka megi seiglu og takast á við álag, en einnig hvernig hægt sé að nýta streituna sem afl til að takast á við áskoranir og breytingar. Hún kennir við læknadeild Háskóla Íslands og er í Fræðslustofnun Læknafélags Íslands. |