Gyða Dröfn Tryggvadóttir er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu (EMPH) frá Háskólanum í Reykjavík.
Hún hefur lokið námi í uppeldis-og áfallafræðumn Piu Mellody (PIT Training for Professionals) sem skoðar áhrif fjölskyldunnar á uppvöxt okkar og þroskaferil.
Gyða Dröfn hefur iðkað Zen hugleiðslu í 27 ár undir handleiðslu Zen meistarans Jakusho Kwong Roshi, bæði hér á landi og í Kaliforníu, þar sem hún hefur dvalið í lengri og skemmri tíma við iðkun og nám. Hún hefur hlotið vígslu sem Zen nunna. Kjarninn í Zen iðkun er hugleiðsla, þar sem hugur og líkami eru í kyrrð og athyglin beinist að því sem á sér stað hér og nú.
Gyða Dröfn er í samstarfi við Chris John, MSc, psychotherapist og PIT meðferðaraðila í London. Þau hafa verið í samstarfi síðan 2017.
Þau bjóða reglulega upp á djúpa sjálfsvinnu í litlum hópum, bæði á Íslandi og í London.
Upplýsingar um Chris: https://www.chrisjohn.london
Gyða Dröfn er í samstarfi við Kristínu Sigurðardóttur, slysa- og bráðalækni og er samstarf þeirra undir merkjum Heillandi.
Meðal verkefna sem þær vinna saman er námskeiðið Seigla, streita, samskipti, meðvirkni, fyrir almenning svo og sérhönnuð námskeið og fyrirlestrar fyrir fagaðila, fyrirtæki og stofnanir. Erindi þeirra eru vinsæl fyrir starfsfólk og stjórnendur í stofnunum og fyrirtækjum.
Fésbókarsíða Heillandi
Gyða Dröfn er í samstarfi við Ástvald Zenki Traustason tónlistarmann og Zen kennara en saman bjóða þau m.a. upp á námskeiðið Ekki of seint að eiga hamingjuríka æsku. Upplýsingar um Ástvald Zenki: www.zenki.is
Menntun:
PIT Training for Professionals - útskrifuð 2014
EMPH í lýðheislu og stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum í Reykjavík 2010
Jógakennaranám - útskrifuð 2006
B.A. í félagsfræði frá Háskóla Íslands
Námskeið:
Past Life Regression Therapy - kennari Stephen Burgess. Haldið í Englandi í maí 2024
Beyond Breath and Ice - Eva Katrín Sigurðardóttir læknir. Hvammsvík 13.-16. okt. 2023
Breath retreat með James Nestor - Costa Rica 11.-18. mars 2023
Bodynamic - Somatic Developmental Psychology - Lene Wisbom í október 2022
The Wisdom of Trauma: Reclaiming Wholeness - Gabor Maté 4.7. mars 2021
Dáleiðslunám í meðferðardáleiðslu (220 stundir) - Dáleiðsluskóli Íslands 2019
Starfsreynsla:
Gyða Dröfn hefur rekið meðferðarstofuna Heill heimur frá 2017,
Gyða Dröfn hefur staðið fyrir heilsutengdum viðburðum og ráðstefnum síðan árið 2010 og má þar nefna ráðstefnurnar Vertu sólarmegin í lífinu (um D-vítamín), Styrkurinn felst í mýktinni (Omega fitusýrur), Flott flóra (meltingarflóran). Hún stóð að, ásamt hópi fagfólks, ráðstefnunni Hver hugar að heilsu þinni, sem var haldin fjórum sinnum fyrir fullum sal í Stakka 2018, Salnum í Kópavogi árið 2019 og fyrir Læknafélag Íslands 2019. Þetta var grunnur að þremur þingum á Læknadögum um áföll og streitu árin 2021 og 2022.

- Framkvæmdastjóri og meðeigandi tónlistarskólans Tónheima 2000 - 2016
- Verkefnastjóri Viku símenntunar, UT ráðstefna frá 2002 - 2006 á vegum menntamálaráðuneytisins.
- Verkefnastjóri Starfsmenntaverðlauna Starfsmenntaráðs 2003-2006
- Áfengisráðgjafi á Vogi og meðferðarheimilinu Vík frá 1999 - 2000.
- Dagskrárgerðarkona á Ríkisútvarpinu frá 1989 - 1996
- Þáttagerð á Ríkisútvarpinu í lausamennsku á árunum 2000-2011
- Sjónvarpsþula hjá Ríkissjónvarpinu 1992 - 1993
- Greinaskrif í ýmis tímarit 1987 - 2005